Foreldrar barns sem kærðu fyrrverandi starfsmann Múlaborgar vegna gruns um brot gegn barninu, furða sig á að lögregla skuli hafa fellt rannsókn málsins niður án þess að ræða við alla hlutaðeigandi. Ríkissaksóknari hefur gert lögreglunni að rannsaka málið betur.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði til rannsóknar grun um að þáverandi starfsmaður hefði brotið gegn minnst tíu börnum á leikskólanum Múlaborg. Einungis eitt mál leiddi til ákæru, en starfsmaðurinn hefur verið ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn stúlku í leikskólanum. Tvö önnur mál fóru til ákærusviðs en lögregla felldi niður rannsókn hinna málanna.Foreldrar fjögurra barna kærðu niðurfellingu málanna til ríkissaksóknara, sem hefur þegar sent tvö mál til frekari rannsóknar. FAÐIR BARNSINS FÉKK EKKI TÆKIFÆRI TIL AÐ BERA VIT