Það verður að hlusta á börn, sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra eftir að málefni manna sem vistaðir voru á Bakkakoti á Rangárvöllum sem börn og segjast hafa verið beittir ofbeldi þar, voru til umfjöllunar á ríkisstjórnarfundi í morgun. Umfjöllun Kveiks fyrr í vikunni hefur vakið mikla umræðu í samfélaginu.Málið er á borði fjögurra ráðuneyta; forsætis, dóms-, mennta- og barnamálaráðuneytis og hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.Fulltrúar tíu manna, sem vistaðir voru í Bakkakoti áttu fund með forsætisráðherra í gær, síðan þá hefur fjölgað í hópnum og nú hafa alls tuttugu leitað til lögmanns með mál sín og vilja leita réttar síns.