Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, þykir leitt hvernig stjórnendur Landspítalans komu fram í vikunni varðandi berklasmit átta starfsmanna bráðamóttökunnar. Það geti ekki verið tilviljun að þeir starfsmenn sem greindust með leynda berkla skuli allir vinna á bráðamóttökunni þar sem ekki sé hægt að tryggja sýkingavarnir.„Það er gríðarlega íþyngjandi meðferð sem fylgir því að uppræta leynt berklasmit,“ segir Helga Rósa sem tekur fram að slíkt sé nauðsynlegt þegar fólk hefur verið útsett fyrir berklum þar sem 10% þeirra eigi á hættu á að fá virkt berklasmit.„Þú hefur kannski ekkert val, þú þarft að undirgangast þessa meðferð,“ segir hún.Meðferðin sé erfið fyrir lifrina og það sé þekkt að fólk fái lifrarbilun og veikist í meðferðinni. Lyfjagjöfin geti þá einnig ha