Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tíu tilkynningar borist vegna hugsanlegs listeríusmits

Tíu tilkynningar hafa borist Reykjavíkurborg um mögulegt listeríusmit vegna framleiðslueldhússins á Vitatorgi í Reykjavík. Listería greindist í rófusalati frá eldhúsinu á mánudag og var því lokað.Framleiðslueldhúsið eldar fyrir aldraða og eru ríflega 900 máltíðir framleiddar þar á hverjum degi.Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir tilkynningarnar hafa borist bæði frá fólki sem býr eitt og fólki sem býr í þjónustuíbúðum fyrir aldraða.Hún segir tilkynningarnar snúa að óþægindum í maga en að enginn sé alvarlega veikur. Ekki sé hægt að staðfesta að veikindin séu vegna listeríu.Eldhúsinu var lokað á mánudag eftir að listería fannst í rófusalati.Bragi Valgeirsson
Tíu tilkynningar borist vegna hugsanlegs listeríusmits

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta