Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, birti í gærkvöldi myndband þar sem andlit þeirra Baracks og Michelle Obama hafði verið sett á líkama apa. Birtingin hefur vakið mikla gagnrýni og þá meðal annars frá þingmönnum Repúblikanaflokksins. Talskona Trumps segir myndbandið ekki rasískt og að blaðamenn eigi að hætta að gera sér upp hneykslan og einbeita sér að hlutum sem skipta máli.