Samfélagsmiðilinn TikTok hefur brugðist harkalega við gagnrýni framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem tilkynnti í morgun að frumniðurstöður rannsóknar á TikTok leiddu í ljós að miðilinn ýtti undir áráttukennda hegðun og gæti valdið skaða, sérstaklega hjá börnum. > „Niðurstöður framkvæmdastjórnarinnar draga upp ranga og innistæðulausa mynd af samfélagsmiðlinum,“ segir í yfirlýsingu sem talsmaður TikTok sendi fjölmiðlum eftir hádegið í dag. „Við munum gera það sem við getum og nýta öll okkar úrræði til að hrekja þessar niðurstöður,“ segir ennfremur í tilkynningunni, sem AFP fréttaveitan fékk frá fyrirtækinu. Framkvæmdastjórn ESB birti í morgun frumniðurstöður rannsóknar á TikTok sem staðið hefur yfir í tæp tvö ár. Þar kemur meðal annars fram að TikTok sé hannað til að ýta undir áráttuke