Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Yfir átta­tíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfs­loka Páls

Mennta- og barnamálaráðuneytið og undirstofnanir þess hafa á árunum 2018 til 2025 gert ellefu starfslokasamninga og nemur kostnaður vegna þeirra samtals 84,1 milljón króna. Munar þar langmestu um tvo starfslokasamninga sem ráðuneytið sjálft gerði árin 2023 og 2025 sem kostað hafa ráðuneytið samtals tæpar 45 milljónir. Þá gerði Fjölbrautaskólinn í Garðabæ einn starfslokasamning árið 2024 upp á 12,8 milljónir, en það er árið sem skólinn gerði starfslokasamning við Pál Vilhjálmsson framhaldsskólakennara sem rataði í fréttir á sínum tíma.
Yfir átta­tíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfs­loka Páls

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta