Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Um 20 árekstrar á einum klukkutíma

Kristján Kristjánsson, framkvæmdastjóri Árekstur.is, segir að hátt í 20 árekstrar hafi verið tilkynntir á höfuðborgarsvæðinu á milli klukkan 11 og 12 í dag vegna hálku. „Það kom bomba um ellefuleytið,“ segir hann.Árekstrar hafi átt sér stað um alla borgina og að margir bílanna hafi orðið óökufærir eða mikið skemmdir. Engu máli hafi skipt hvort nagladekk eða voru undir bílum eða ekki þar sem glerhált hafi verið á vegum.Kristján segir ástandið sem myndaðist nokkuð líkt því sem gerðist þann 20. febrúar þegar alls var tilkynnt um 80 árekstra. Tímasetning hálkumyndunar hafi þó verið undarleg þar sem yfirleitt sé hún að myndast að morgni eða síðdegis. „Ég man ekki eftir að hafa séð svona mikla hálku myndast á þessum tíma,“ segir hann.Aaron Palomares, læknir á bráðamóttöku Landspítalans, segir að
Um 20 árekstrar á einum klukkutíma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta