Loka á leikskólanum Vinagerði í Safamýri í Reykjavík þann 15. september vegna endurbóta sem ráðast þarf í á húsnæði skólans. Þetta kemur fram í bréfi sem sent var á foreldra barna í leikskólanum. Á leikskólanum Vinagerði eru alls um 60 börn á þremur deildum.Foreldrar hafa verið boðaðir á upplýsingafund 9. febrúar. Fulltrúar frá skóla- og frístundasviði og umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar munu þar fara yfir stöðuna.Samkvæmt upplýsingum frá umhverfis- og skipulagssviði er nauðsynlegt að ráðast í umfangsmikið viðhald og endurbætur á húsnæði skólans í Langagerði. Talið er að ekki verði hægt að nota það í leikskólastarf á næstu árum. Vinagerði er einnig með húsnæði við Safamýri og er það komið á niðurrifsáætlun og verður því ekki hægt að halda áfram rekstri þar.Ekki verður innrita