Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fimm eða tíu á föstudegi

HARRY STYLES – APERTURE Það er ekki algengt að boðið sé upp á Harry Styles í Fimmunni, af augljósum ástæðum en aðallega þeim að hann fær nóg pláss annars staðar. Það er þó alltaf undantekning á öllum reglum og nýja lagið hans, Aperture, sem situr á toppnum í Bandaríkjunum, Bretlandi og víðar er bara þess eðlis að það á heima hér. Sagan segir að Styles hafi farið á tónleika með LCD Soundsystem og orðið svona líka heillaður af upplifuninni sem er fyrsta lagið af plötunni Kiss All the Time, lagið Disco, Occationally. FCUKERS – L.U.C.K.Y. Hressu krakkarnir Jackson Walker Lewis vélamaður og Shanny Wise söngkona í Fcukers frá New York halda áfram að heilla. Í þetta skiptið er það stutti bangerinn L.U.C.K.Y. sem hrellir hátalarana með grípandi laglínum og bjögun úr ættboga Daft Punk. ARLO P
Fimm eða tíu á föstudegi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta