Konu er saknað á Spáni og minnst einn er látinn í Portúgal af völdum mikilla flóða sem fylgja storminum Leonardo sem herjar á Íberíuskaga. Þúsundir á Suður-Spáni hafa þurft að yfirgefa heimili sín.Fulltrúar almannavarna ganga hús úr húsi í Grazalema á Spáni og ganga úr skugga um að búið sé að rýma bæinn. Allir hátt í tvö þúsund íbúar Grazlema eru á meðal þeirra sjö þúsund sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna stormsins Leonardo.Á Malaga svæðinu féll 45 ára kona í á þegar hún reyndi að bjarga hundi sínum á miðvikudag. Hennar er enn saknað.Stormurinn Leonardo er aðeins einn af mörgum sem hafa herjað á Íberíuskaga síðustu vikur og varað er við nýjum stormi, Mörtu, sem skellur á skaganum á morgun með mikilli úrkomu.Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Portúgal. Karlmaður lést þegar han