Sautján ára piltur lést í umferðarslysinu á Miklubraut i Reykjavík í gærkvöldi. Hann var farþegi í bifreið sem var ekið austur Miklubraut þegar slysið varð, á móts við hús Hjálpræðishersins. Ökumaðurinn, piltur á sama aldri, slasaðist töluvert og er líðan hans eftir atvikum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins. Boðað hefur verið til kyrrðarstundar í Árbæjarkirkju í...