Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ormstunga: Blæs nýju lífi í ríkan sagnaarf Íslendinga

Katla Ársælsdóttir skrifar:Söngleikurinn Ormstunga var nýlega frumsýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Þetta nýja verk er byggt á Gunnlaugs sögu ormstungu, sem er ein Íslendingasagnanna og segir frá Gunnlaugi Illugasyni, skáldi og örlögum hans og Hrafns Önundarsonar.Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gunnlaugssaga er sviðsett. Benedikt Erlingsson og Halldóra Geirharðsdóttir settu á svið verk með sama nafni fyrir þrjátíu árum og sú uppsetning varð gífurlega vinsæl.Nú hefur verið blásið nýju lífi í söguna og öllu tjaldað til. Í uppsetningu Þjóðleikhússins eru leikararnir nítján talsins og lögin þrjátíu.Þetta er saga sem stenst tímans tönn og snertir á þemum á borð við ást, hefnd, vináttu og græðgi. Hún er uppfull af dramatík eins og svo margar Íslendingasögur og í þessari uppsetningu er saga
Ormstunga: Blæs nýju lífi í ríkan sagnaarf Íslendinga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta