„Það á að byggja fimmtán 50 fermetra túristahús eða ferðamannahús. [...] Ef þú skoðar svæðið á korti þá er þetta flóðasvæði og samkvæmt skipulagsreglugerð má ekki byggja á flóðasvæði. Bærinn ætlar ekkert að bakka með það, þeir ætla bara að byggja þarna,“ segir Freyr Gunnarsson sem býr í húsinu Reynisstöðum við jörðina Gauksstaði í Garði í Suðurnesjabæ.Freyr tjáir sig um fyrirhugaða byggingu fimmtán smáhýsa fyrir ferðamenn sem fyrirtækið Lion ehf. ætlar að byggja þar. Allt að 50 manns eiga að geta gist í húsunum. Auk þess á að byggja 300 fermetra þjónustubyggingu á jörðinni. Heildarbyggingarmagn á því að vera um 1000 fermetrar. Flugvöllurinn á Miðnesheiði er í sveitarfélaginu Suðurnesjabæ og er stöðug eftirspurn eftir gistirýmum fyrir ferðamenn í nágrenni við hann.Freyr og hópur íbúa í nágr