Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sautján ára piltur lést í umferðarslysi á Miklubraut

Sautján ára piltur lést í umferðarslysi á Miklubraut í gærkvöldi. Tveir voru í bílnum. Ökumaðurinn, piltur á sama aldri, slasaðist töluvert og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild.Þetta segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Tilkynning um slysið barst klukkan 23:18 í gærkvöld. Fjórir sjúkrabílar og tveir dælubílar voru kallaðir á vettvang slyssins, sem varð til móts við húsnæði Hjálpræðishersins.Bifreiðin hafnaði á vegriði. Lögreglan óskar eftir vitnum að slysinu. Þeir sem hafa einhverjar upplýsingar eru beðnir um að senda þær á netfangið abending@lrh.is eða í síma 444-1000.Boðað hefur verið til kyrrðarstundar í Árbæjarkirkju vegna slyssins. Hún hefst klukkan 16.
Sautján ára piltur lést í umferðarslysi á Miklubraut

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta