Í ljósi alvarlegs slyss sem varð á Miklubraut í gærkvöldi hefur verið boðað til kyrrðarstundar í Árbæjarkirkju í dag klukkan 16.Einn var fluttur alvarlega slasaður á bráðamóttöku Landspítalans en tilkynning barst um slysið klukkan 23:18 í gærkvöldi.Séra Þór Hauksson mun leiða stundina og Guðmundur organisti spilar undir.Í tilkynningu frá kirkjunni segir að gestum gefist kostur á að tendra kerti í friði og hljóðri minningu.Allir eru velkomnir.