Tekjur Icelandair hafa aldrei verið meiri en á síðasta ári og farþegafjöldinn fór í fyrsta sinn yfir fimm milljónir.Engu að síður var félagið rekið með rúmlega tveggja milljarða króna tapi, samkvæmt ársuppgjöri félagsins sem birt var í gær.Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar að rekstrarniðurstaða ársins 2025 sé ekki í takt við það sem lagt var upp með í ársbyrjun þó að mörgu leyti gengi vel síðasta fjórðunginn. SEGIR YTRI ÞÆTTI SKÝRA REKSTRARTAPIÐ Þrátt fyrir metár í tekjum og farþegaflutningum félagsins er tapið samt rúmlega tveir milljarðar.Bogi segir að ekki sé um að kenna mistökum í rekstri. Hann segir fyrirtækið vera á réttri leið en að ákveðnir þættir hafi neikvæð áhrif á reksturinn.„Heimsmálin hafa haft áhrif á okkur,“ segir Bogi.Bogi