Flugvél SAS nauðhemlaði í miðju flugtaki í Brussel í Belgíu þegar í ljós kom að vélin var ekki á flugbraut heldur akbraut. Íslendingur sem var í vélinni segist aldrei áður hafa lent í neinu þessu líku.Belgísk flugmálayfirvöld rannsaka atvik sem varð í gærkvöld þegar flugmenn farþegaþotu SAS á leið frá Brussel til Kaupmannahafnar reyndu flugtak af akbraut. Akbrautin liggur samhliða flugbraut. Vélin var komin á 200 kílómetra hraða þegar flugmennirnir uppgötvuðu mistökin og nauðhemluðu.Flugsérfræðingur sem rætt var við í Brussel Times segir að einungis hafi munað þremur til fjórum sekúndum að flugvélin hefði náð 270-280 kílómetra flugtakshraða. Akbrautin hafi verið allt of stutt til þess og atvikið endað með árekstri.Sólrún Kristjánsdóttir var í vélinni ásamt hópi annarra Íslendinga. Hún segi