Ekki er útilokað að enn meiri loðnukvóti verði gefinn út því í næstu viku sendir Hafrannsóknastofnun rannsóknarskipið Árna Friðriksson til að kanna útbreiðslu loðnu norðvestan við land.Loðnan gengur yfirleitt austur fyrir land en dæmi eru um að hluti stofnsins fari vestur fyrir eða rangsælis um landið til að hrygna úti fyrir Breiðafirði og Faxaflóa. Vísbendingar um mögulega vestangöngu fundust í janúar og dæmi eru um að aukamæling í febrúar skili auknum kvóta. EINHVERJAR LÍKUR EN EKKI MIKLAR Guðmundur Óskarsson, sem stýrir uppsjávarsviði Hafró, segir að tilgangurinn sé þó fyrst og fremst að kanna útbreiðsluna. Meira gæti fundist en líkurnar séu ekki miklar miðað við útbreiðslu og magn sem fannst í janúar.Ráðgert er að Árni Friðriksson haldi af stað 10. febrúar og leiðangurinn taki 12 da