Málefni Bakkakots, sem fjallað var um í fréttaskýringaþættinum Kveik í vikunni, var rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Í þættinum sögðu fimm menn að húsfreyjan á Bakkakoti hafi beitt þá margvíslegu ofbeldi, en börn voru í fóstri á bænum á árunum 1975 til 2020. Tíu menn segjast hafa verið beittir ofbeldi á bænum.Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hitti þrjá mannanna og lögmenn þeirra í gær, en hún hafði áður sagt augljóst að kerfið hafi brugðist börnunum. Að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun sagði Kristrún að ákvörðun hefði verið tekin um fjögur atriði til að bregðast við málinu.„Í fyrsta lagi að strax verði þeim aðilum sem hafa verið vistaðir á Bakkakoti veitt og boðin sálfræði- og áfallaaðstoð. Forsætisráðuneytið mun hafa milligöngu um þetta mál. Í öðru lagi að það verði ranns