Tíðarfar á landinu í janúar var óvenjulega hægviðrasamt og bjart. Óvenjuþurrt og snjór var með minnsta móti bæði á láglendi og til fjalla.Í yfirliti á vef Veðurstofu Íslands segir að á sunnan- og vestanverðu landinu hafi verið sérlega þurrt og snjólétt. Raunar var þetta á meðal þurrustu janúarmánaða á vestanverðu landinu – frá upphafi mælinga. Á nokkrum veðurstöðvum á vestur- og norðvesturlandi mældist heildarúrkoma mánaðarins einungis nokkrir millimetrar. Úrkoma var nær meðallagi allra austast á landinu.Úrkoma í Reykjavík mældist 26,5 mm sem er innan við þriðjungur af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Þar hefur aðeins einu sinni mælst minni úrkoma í janúarmánuði en það var árið 1936 þegar úrkoman mældist einungis 2,4 millimetrar.Fyrri hluti mánaðarins var kaldur á landsvísu en seinni hlut