Háttsettur hershöfðingi í rússneska hernum var fluttur mikið slasaður á sjúkrahús í morgun eftir að hann varð fyrir skotárás í íbúðarhverfi í höfuðborginni Moskvu. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um ástand hans, að því er segir í frétt BBC. Um er að ræða Vladimír Alexeyev, sem gegnir stöðu í aðalstjórn rússneska herforingjaráðsins, svokallaðri GRU-leyniþjónustu hersins. Lesa meira