Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum hefur hafnað kröfu konu um bætur úr sjúklingatryggingu skurðlæknis. Fór konan til læknisins vegna hnúts í brjósti. Ekkert fannst við nánari rannsókn og var konan á endanum send heim. Leitaði konan aftur til læknis árið eftir en þá fannst krabbamein í báðum brjóstum og meinvörp í lungum og reyndist umfang sjúkdómsins mikið. Lesa meira