Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að mjög alvarlegu umferðarslysi sem varð á Miklubraut í Reykjavík í gærkvöld, tilkynning um slysið barst klukkan 23.18.Þar hafði bifreið staðnæmst við stólpa Vegagerðarinnar, á móts við hús Hjálpræðishersins, eftir að hafa verið ekið austur Miklubraut.Í tilkynningu frá lögreglu er einnig óskað eftir myndefni frá þeim sem fóru um Miklubraut í aðdraganda slyssins, bæði til austurs og vesturs.Þeir sem hafa einhverjar upplýsingar eru beðnir að senda þær á netfangið abending@lrh.is eða í síma 444 1000. EINN VAR FLUTTUR Á SJÚKRAHÚS Einn var fluttur á slysadeild, ekki hafa fengist frekari upplýsingar um líðan hans.Svo virðist sem bíl hafi verið ekið á vegrið. Fjórir sjúkrabílar voru kallaðir út og tveir dælubílar.