Enn er óvíst hvort einhverjir þeirra flokka sem áttu aðild að Í-listanum í Ísafjarðarbæ muni bjóða fram sameiginlegan lista í komandi sveitarstjórnarkosningum eða hvort þeir bjóði fram í eigin nafni. Viðræðum um áframhaldandi samstarf var slitið í vikunni eftir að ekki náðist samstaða um uppstillingu á lista undir formerkjum Í-listans. Sitjandi oddviti listans segir kjarnann úr hópnum hafa áhuga á að halda áfram og sjálfur hyggst hann gefa kost á sér. Það eigi eftir að koma í ljós hvort það verði í nafni Viðreisnar eða annars sameiginlegs framboðs.