Skólar eru víða lokaðir í Danmörku í dag og almenningssamgöngur úr skorðum vegna mikillar snjókomu. Búist er við að snjókomunni linni í kvöld og úrkoman breytist í slyddu eða rigningu.Miklar seinkun er á flugferðum og viðbragðsaðilar hafa síðan í gær aðstoðað fólk sem festi bíla í slæmri færð.Á Sjálandi er um 20 sentimetra jafnfallinn snjór og 30 sentimetrar á Austur-Jótlandi. FÓLK ER BEÐIÐ AÐ HALDA SIG HEIMA Lögregla á Jótlandi og Sjálandi biður íbúa að halda sig heima og sleppa öllum óþarfa ferðalögum.Fjöldi umferðaróhappa hefur orðið og margir bílar sitja fastir á vegum. Erfiðlega gengur að ryðja vegi og gangstíga í mikilli snjókomu.Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur ætlaði að heimsækja skóla í Ribe á Jótlandi í dag og halda fyrirlestur um utanríkismál fyrir nemendur. Heims