Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Trump bað um fulltingi við að lestarstöð og flugvöllur yrðu nefnd eftir honum

Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Penn-lestarstöðin í New York og Dulles-alþjóðaflugvöllurinn við Washington verði nefnd í höfuðið á honum ef marka má ónafngreinda heimildarmenn miðlanna CNN og NBC.Forsetinn á að hafa beðið Demókratann Chuck Schumer, öldungadeildarþingmann fyrir New York, að liðsinna sér við það gegn því að hætt verði við frystingu fjármuna til lagningar jarðganga milli New York og New Jersey.Miðlarnir segja báðir að Schumer hafi hafnað tilboðinu. Athafnir Trumps eru fordæmalausar, enda venjan sú að nefna ekki byggingar, skip og aðra innviði eftir forsetum fyrr en að þeim gengnum.Donald Trump fékk handvalda stjórn Kennedy-miðstöðvarinnar í desember til að bæta nafni sínu framan við heiti hennar við hávær mótmæli listafólks. Hann hefur einnig boðað byggingu „Sjálfstæði
Trump bað um fulltingi við að lestarstöð og flugvöllur yrðu nefnd eftir honum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta