Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Það gæti snjóað í efri byggðum á höfuðborgarsvæðinu

Í dag er spáð austlægum áttum á landinu en strekking með suðurströndinni.Útlit er fyrir að skil gangi yfir höfuðborgarsvæðið undir morgun með rigningu eða slyddu. Þó eru líkur á snjókomu, einkum í efri byggðum.Það styttir upp um hádegi og léttir víða til en úrkomulítið verður austanlands síðdegis. NORÐAUSTLÆG ÁTT UM HELGINA Um helgina er spáð norðaustlægri átt með strekkingi eða allhvössum vindi norðvestan- og suðaustantil. Það verður bjart að mestu vestanlands en dálítil él norðan- og austantil.Kalt loft kemur yfir landið í næstu viku og því fylgir kólnandi veður, einkum norðanlands.
Það gæti snjóað í efri byggðum á höfuðborgarsvæðinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta