Ný þurrkví hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur er enn á dagskrá að sögn framkvæmdastjórans. Þess sé hins vegar beðið að efnahagshorfur og þar með vaxtastigið færist í betra horf. Breytingar á höfninni búi til frábærar aðstæður fyrir skipaþjónustu sem annað geti skipum víða að.