Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stóð í nokkrum málum í gærkvöldi og nótt þar sem áfengisneysla kom við sögu og ók meðal annars tveimur einstaklingum heim sökum ölvunar, í tveimur aðskildum atvikum. Þá fór hún tvívegis í útkall vegna sama ölvaða einstaklingsins sem var að vera til vandræða.