Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þota SAS reyndi flugtak af akbraut flugvéla á Brussel-flugvelli

Flugmálayfirvöld rannsaka nú atvik þar sem flugmaður farþegaþotu SAS á leið frá Brussel til Kaupmannahafnar hætti við flugtak því hún reyndist á samhliða akbraut í stað úthlutaðrar flugbrautar. Þotan, Airbus A320neo, var á næstum tvö hundruð kílómetra hraða þegar hætt var við flugtak. Níu Íslendingar voru um borð í þotunni og einn þeirra segir í tölvupósti til fréttastofu að þotan hefði stöðvast örugglega án þess að nokkurn sakaði. Fluginu hafi umsvifalaust verið aflýst, farþegar stigið frá borði og viðhaldsteymi skoðað bremsubúnað þotunnar, sem hitnaði mikið. Eftir tveggja tíma bið í flugstöðinni hafi farþegar haldið inn til Brussel á hótel. Norska ríkisútvarpið hefur eftir farþega að þotan hafi leikið á reiðiskjálfi þegar henni var bremsað af öllu afli, snúið í bakkgír og vængspeldi sett
Þota SAS reyndi flugtak af akbraut flugvéla á Brussel-flugvelli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta