Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Maður gekk viljandi í veg fyrir umferð og hestamaður féll af baki

Hestamaður var fluttur á sjúkrahús til skoðunar eftir að hann féll af baki að því er segir í morgunskeyti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglukonur að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni.RÚVAuk þessa barst lögreglu tilkynning um mann sem viljandi gekk í veg fyrir umferð miðsvæðis í Reykjavík, eld í ruslatunnu og skemmda bifreið utan vegar. Málið er til rannsóknar en ekki er vitað hver sat undir stýri. Lögreglumenn liðsinntu ölvuðu fólki, sumu ósjálfbjarga, og komu því heim til sín ásamt því að hafa afskipti af ökumönnum í ýmsu ástandi.
Maður gekk viljandi í veg fyrir umferð og hestamaður féll af baki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta