Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Brýnt að hlusta þegar börn reyna að segja frá ofbeldi

Frásagnir manna sem urðu fyrir miklu líkamlegu, andlegu og kynferðislegu ofbeldi þegar þeir dvöldu í æsku á Bakkakoti hafa vakið mikla athygli í samfélaginu. Þær Bryndís Björk Ásgeirsdóttur, prófessor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík, og Þóra Sigfríður Einarsdóttir, sérfræðingur í klínískri barnasálfræði með áfallasálfræði sem undirgrein, ræddu í Samfélaginu um áföll og ofbeldi sem börn verða fyrir í æsku sem og þau úrræði sem bæði börn og fullorðnir sem verða fyrir slíku geta leitað.Bryndís segir rannsóknir sýna að afleiðingar slíks ofbeldis fyrir ungmenni séu margþættar og fjölbreyttar. „Nefna má andlegar afleiðingar á borð við mikinn kvíða, þunglyndi og reiði. Þessi hópur ungmenna er mun líklegri til að leiðast út í áfengis- og vímuefnaneyslu, afbrotahegðun og sömuleiðis sjálfsskaða
Brýnt að hlusta þegar börn reyna að segja frá ofbeldi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta