Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Varnarmálaráðherrar ræða varnir Grænlands í næstu viku

Varnarmálaráðherrar ríkja Atlantshafsbandalagsins munu að öllum líkindum ræða leiðir til að auka varnir Grænlands á fundi í næstu viku.Breski varnarmálaráðherrann John Healey á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn í janúar.EPA / Thomas TraasdahlReuters hefur þetta eftir breska varnarmálaráðherranum John Healey sem segir fyrirhuguðu varnarstefnuna „Norðurslóðavörð“ til þess hugsaða að bregðast við ásökunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að bandalagið hafi trassað varnir Grænlands.Þannig sjái Trump að NATÓ viðurkenni áhyggjur hans og það vilji tryggja öryggi landsins enn frekar. „Trump hefur bent á að þarna sé verk að vinna, áskorun fyrir bandalagið,“ sagði Healey og bætti við að öll ríki þess ætluðu að auka enn á varnir.
Varnarmálaráðherrar ræða varnir Grænlands í næstu viku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta