Mikið tjón hefur orðið af árásum Úkraínuhers á rússnesku landamæraborgina Belgorod, að sögn héraðsstjórans Vyacheslavs Gladkov. Vyacheslav Gladkov á fundi með Vladimír Pútín Rússlandsforseta.EPA / MIKHAIL METZEL / SPUTNIK / KREMLIN / POOLHann segir í ávarpi á Telegram að borgaryfirvöld hefðu kallað saman neyðarfund til að ákveða næstu skref. „Óvinurinn hefur valdið miklum skemmdum í Belgorod. Eins og allir vita eru engin hernaðarleg skotmörk þar,“ sagði Gladkov í ávarpinu og bætti við að hann hefði séð eyðilegginguna með eigin augum.