Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mettekjur Icelandair en forstjórinn segir rekstrarniðurstöðuna ekki í takti við upplegg ársins

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar rekstrarniðurstöðu ársins 2025 ekki í takt við það sem lagt var upp með í ársbyrjun þótt að mörgu leyti gengi vel síðasta fjórðunginn. Hann fagnar því að Icelandair flutti yfir fimm milljón farþega í fyrsta sinn í sögu félagsins auk þess sem það teljist eitt það stundvísasta í Evrópu. Lausafjárstaðan sé einnig sterk. Uppgjör ársins var birt í gær. Tekjur félagsins jukust um ellefu af hundraði milli ára og það skilaði mettekjum, 223,6 milljörðum króna. Tapið nam 2,2 milljörðum, án þess að tekið sé tillit til greiðslu vaxta og skatta, jókst alls um 289 milljónir en batnaði um 252 milljónir síðustu þrjá mánuði ársins. Hins vegar minnkaði tap eftir skatta árið 2025 í 1,2 milljarða króna úr 2,8 milljörðum árið áður
Mettekjur Icelandair en forstjórinn segir rekstrarniðurstöðuna ekki í takti við upplegg ársins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta