Nokkur hundruð mótmæltu brottrekstri fjölda blaðamanna Washington Post við höfuðstöðvar blaðsins í gær. „Lýðræðið deyr í myrkrinu og þú Jeff Bezos hefur slökkt ljósin,“ stóð á einu mótmælaskilti og vísað til auðmannsins sem hefur átt þetta sögufræga blað í meira en áratug. Verulega er skorið niður á ritstjórn Washington Post á sama tíma og Donald Trump Bandaríkjaforseti sakar hefðbundna fjölmiðla um flutning falsfrétta og hefur iðulega höfðað mál gegn þeim. „Fjöldauppsagnir eru hættulegar á á slíkum tímum,“ hefur AFP-fréttaveitan eftir stjórnmálablaðamanninum Michael Brice-Saddler, sem hefur verið sagt upp störfum. Þær verði til þess að blaðið tapi fjölda heimildamanna og getunni til að segja mikilvægar fréttir. Blaðamaðurinn Marissa J. Lang segir ómældan skaða fylgja brottrekstri blaðaman