Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rannsaka Jagland í kjölfar birtingar Epstein-skjalanna

Norsk yfirvöld ætla að hefja rannsókn á hendur Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, vegna gruns um stórfellda spillingu. Frá þessu er greint á vef norska ríkisútvarpsins NRK.Rannsóknin er hafin í kjölfar þess að minnst var á hann nokkrum sinnum í Esptein-skjölunum svokölluðu, er varða mál bandaríska barnaníðingsins Jeffreys Epstein sem lést í fangelsi í Bandaríkjunum 2019.Økokrim, sem rannsakar efnahagsbrot, hyggst rannsaka hvort Jagland hafi þegið gjafir meðan hann var formaður Nóbelsnefndarinnar og framkvæmdastjóri Evrópuráðsins.„Hann er grunaður um alvarlega spillingu,“ hefur NRK eftir Pål K. Lønseth, yfirmanni Økokrim.Norsk stjórnvöld hafa óskað eftir því að friðhelgi sem Jagland naut sem framkvæmdastjóri verði aflétt. Evrópuráðið sagði í yfirlýsingu að skjöl þeirra
Rannsaka Jagland í kjölfar birtingar Epstein-skjalanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta