Það var líf og fjör í Menntaskólanum að Laugarvatni í vikunni þegar nemendur fengu nokkra fyrrverandi nemendur, sem voru meðal annars í skólanum fyrir 50 árum til að koma í heimsókn og kenna núverandi nemendum að spila bridge. Uppátækið vakti mikla athygli og höfðu nemendurnir ekki síður gaman af því en „gömlu“ bridgespilararnir.