Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, segir að halda þurfi Bakkakotsmálinu á lofti og vill sjá aukin úrræði til að styðja við börn. Hann situr í þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir og kveðst ætla að beita sér sérstaklega til að ná fram framförum í málaflokknum.Í Kveik á þriðjudag stigu menn fram og sögðust hafa orðið fyrir grófu ofbeldi á barnsaldri á sveitabænum Bakkakoti á Suðurlandi á níunda og tíunda áratugnum.Jón Gnarr og Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, ræddu málið í Kastljósi. Halla hefur óskað eftir sérstakri umræðu á Alþingi með forsætisráðherra. Hún segir þurfa að skoða Bakkakotsmálið sérstaklega en líka fara yfir kerfið í heild.„Við þurfum að nota þetta mál til að horfa á kerfið í heild sinni, til þess að passa upp á að það séu ekki brotala