Það styttist í kosningar og spennan tekin að aukast, enda víða mikið í húfi. Orri Björnsson, oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, segir að markmiðið hljóti að vera að viðhalda þeirri grósku, sem einkennt hafi bæinn undanfarin ár, án þess að stofna fjárhag hans í hættu.