Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Spíra: Sköpunargleðin upptendruð

Arnar Eggert Thoroddsen skrifar:Spíra minnir nokkuð á fyrstu plötu Ólafar Arnalds, Við og við. Ég ætlaði svona varla að þora að minnast á það, enda eru poppheimar venjulega undirlagðir af áherslunni á hið nýja og núið og afturhvörfum oft mætt með tortryggni. En svo er þetta sem ég heyri óneitanlega nefnt sérstaklega í formlegum kynningartexta. Þar segir að sköpunargleðin sé upptendruð á nýjan leik og platan minni á frumburðinn um margt: Spíra sé sungin á íslensku, útsetningar strípaðar og hljóðfæraleikur í senn natinn og nálægt þér. Flest lögin eru þá „fyrstu töku“ lög sem voru fönguð í Sundlauginni alveg eins og þegar Við og við var tekin upp. Maður Ólafar, Skúli Sverrisson, upptökustýrir Spíru og leikur líka á bassa og gítar. Davíð Þór Jónsson leggur einnig til píanó og gítar en hann og
Spíra: Sköpunargleðin upptendruð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta