Fjöldi barna sem bíða eftir að komast í meðferð hefur sveiflast undanfarin fimm ár. Mest hafa átta börn verið á biðlista, nú er þar eitt.Þetta kemur fram í svari mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn um fíknimeðferðarúrræði fyrir börn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, þingmanni Miðflokksins. Samkvæmt upplýsingum frá Barna- og fjölskyldustofu voru fyrst teknar saman upplýsingar um þróun biðlista á vegum stofnunarinnar árið 2021.Biðlistinn hefur verið sveiflukenndur, allt frá engu barni upp í átta, en í febrúar 2023 var ekkert barn á biðlista. Í heilt ár, eða frá febrúar 2024 til febrúar 2025, voru jafnan átta börn sem biðu eftir að komast í meðferð.Hægt er að lesa svar ráðuneytisins á vef Alþingis. VILJA AUKA HEIMILDIR TIL LÍKAMSLEITAR OG LÍKAMSRANNSÓKNA Þingmaðurinn spurði einni