Dómstóll í Antwerpen í Belgíu dæmdi í dag mann fyrir nauðgun. Hann laug að kynlífsverkakonu að hann hefði borgað henni. Þetta er í fyrsta sinn sem nauðgunardómur fellur fyrir þær sakir í landinu. Maðurinn framvísaði falsaðri kvittun við konuna áður en hún veitti honum þjónustu. Fyrir vikið kærði hún manninn fyrir að hafa haft samræði við sig án samþykkis. Dómstóll féllst á kröfu saksóknara þar sem belgísk lög skilgreina nauðgun sem samræði án samþykkis. Sé einhver blekktur til samræðis, geti ekki talist svo að samþykki hafi fengist. Vændi er löglegt í Belgíu og yfirvöld þar í landi leitast frekar við að leyfa starfsemina en þó með ströngu eftirliti. Þeir sem selja vændi eru í langflestum tilfellum konur og í hafnarborginni Antwerpen eru yfirvöld sögð ganga nokkuð langt í að standa vörð um