Ríkissaksóknari hefur gert lögreglu að taka aftur upp rannsókn á tveimur málum vegna meintra kynferðisbrota fyrrverandi starfsmanns leikskólans Múlaborgar. Foreldrar fjögurra barna kærðu niðurfellingu mála til ríkissaksóknara, sem á eftir að taka afstöðu til tveggja þeirra.Fyrrverandi starfsmaður Múlaborgar var ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn stúlku í leikskólanum. Fyrir dómi játaði hann sök að hluta og neitaði öðru.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði til rannsóknar grun um brot gegn minnst tíu börnum á Múlaborg. Þrjú mál voru send á ákærusvið en einungis eitt leiddi til ákæru. Lögregla hætti rannsókn hinna málanna. Foreldrar fjögurra barna kærðu þá ákvörðun lögreglunnar til ríkissaksóknara, sem hefur sent tvö málanna til frekari rannsóknar hjá lögreglu. Þetta staðfestir Sigrí