Landsréttur þyngdi í dag sex ára fangelsisdóm yfir Jóni Þór Dagbjartssyni um eitt ár. Jón Þór var ákærður fyrir tilraun til manndráps, stórfellt brot í nánu sambandi og kynferðisbrot gegn fyrrum sambýliskonu sinni og barnsmóður.Barnsmóðir hans lýsti árásinni, sem var lífshættuleg, í viðtali við Kastljós í desember 2024. Þar greindi hún frá því hvernig lögregla hefði brugðist í aðdraganda árásarinnar þegar maðurinn hafði ofsótt hana mánuðum saman.Héraðsdómur Austurlands dæmdi Jón Þór til sex ára fangelsisvistar í júní í fyrra. Honum var einnig gert að greiða barnsmóður sinni 3,1 milljón króna í miskabætur og allan sakarkostnað, 15 milljónir króna.Í niðurstöðu Landsréttar segir að af gögnum málsins að dæma þyki hafið yfir skynsamlegan vafa að beinn ásetningur ákærða hafi staðið til þess að s