Festi, sem á meðal annars Krónuna, Elko, Lyfju og N1, skilaði 6,2 milljarða króna hagnaði í fyrra. Til samanburðar var hagnaður félagsins 2024 fjórir milljarðar króna.Þetta kemur fram í ársreikningi sem birtur var eftir lokun markaða í dag.Niðurstaðan er töluvert umfram þær áætlanir sem gerðar voru í upphafi árs í fyrra enda var afkomuspáin hækkuð í tvígang samhliða árshlutauppgjörum. Gerð er tillaga um að tæplega 2,2 milljarðar verði greiddir í arð.Rekstrartekjur jukust um 12 prósent á milli ára, voru 175 milljarðar, og skiluðu allar einingar félagsins betri afkomu. Er tekið fram að velta í dagvöru- og eldsneytissölu hafi verið töluvert meiri en gert var ráð fyrir.Í ársreikningum segir að horfur fyrir 2026 séu ágætar þrátt fyrir óvissu í þróun efnahagsmála og stefnir félagið að skila betr