Guðlaugur Kristmundsson, formaður Félags fósturforeldra, segist fagna því að Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) sé mætt til umræðu um fósturkerfið. Hingað til hafi hún ekki tekið þátt í þeim samtölum sem félagið hafi átt við stofnunina.Hann líkir samskiptum við stofnanir, ráðuneyti og sveitarfélög sem „eyðimerkurgöngu.“„ Það hefði verið heiðarlegra af forstjóranum að draga það fram hversu langan tíma það hafi tekið fyrir okkur að fá fyrstu áheyrn og að forstjórinn sjálfur hafi ekki verið til viðtals í því takmarkaða samtali. Ef forstjóri GEV hefði setið þessa fundi, hefði hún sjálf heyrt bón okkar um að frumkvæðisathugun yrði gerð með sveitarfélögunum á þeirra eigin eftirliti með fóstri og ítrekaðar ábendingar okkar um þau fjölmörgu dæmi þess að