Í Þetta helst í dag er sjónum beint að fánaborginni við Ráðhús Reykjavíkur. Á fundi borgarráðs í morgun var tekin fyrir tillaga borgarstjóra um að flagga grænlenska fánanum við ráðhúsið. Hugmyndin með tillögunni er að sýna nágrönnum okkar táknræna samstöðu, eins og borgarstjóri orðaði það í Facebook-færslu. Fáni Grænlands yrði þá dreginn að húni við hlið úkraínska þjóðfánans og þess palestínska sem þar eru fyrir af sömu ástæðu.Meirihluti borgarráðs samþykkti í dag að flagga grænlenska fánanum við ráðhúsið til að sýna táknræna samstöðu með Grænlendingum. Þar eru fyrir úkraínski þjóðfáninn og sá palestínski.Meirihluti borgarráðs hefur samþykkt tillöguna og málið fer til borgarstjórnar. Hildur Björnsdóttir sagði í vikunni að tillagan væri til þess eins að bæta í fánaborg fáránleikans og að Re