Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Verzlingar á ferð og flugi fyrir Ljósið

Nemendafélag Verzlunarskóla Íslands stendur þessa dagana fyrir árlegri góðgerðarviku. Í ár var ákveðið að styðja Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð.Alls konar uppákomur hafa verið á dagskrá þessa vikuna til að safna áheitum. Tveir nemendur skipta meðal annars um hlutverk og gerast MR-ingar í einn dag.Þá lögðu fjórir félagar, Benedikt Björnsson, Dagur Thors, Gunnar Jarl Sveinsson og Pétur Atli Kárason, land undir fót á þriðjudag - keyra hringinn í kringum landið og taka upp á ýmsum skemmtilegheitum.Þeir verða á Akureyri í dag þar sem þeir bregða á leik, en gera ráð fyrir að ljúka ferðalaginu í Verzló á morgun.Myndir frá uppákomum og upplýsingar um Góðgerðarvikuna má finna á samfélagsmiðlum, Tiktok, Instagram og Facebook.
Verzlingar á ferð og flugi fyrir Ljósið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta